Um Uppkast
Uppkast er íslensk streymisveita með fjölbreyttu efni þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hægt er að horfa á Uppkast bæði hér á vefnum, en líka í smáforritum í símum, spjaldtölvum og sjónvörpum sem keyra á Android eða Apple (iOS) stýrikerfum. 

Áskriftarveita
Á áskriftarveitunni má finna bæði nýtt og eldra efni. Á áskriftarveitunni má finna hundruði titla í ýmsum flokkum og í hverri viku bætist við nýtt efni inn á áskriftarveituna. Meðal efnis eru t.d. fjölbreytt barnaefni, matreiðsluþættir, umfjöllun um íþróttir, heilsu og margt fleira.

Stakir viðburðir
Hægt er að kaupa aðgang að stökum viðburðum, svo sem tónleikum, sem ýmist eru í beinni útsendingu eða teknir upp fyrirfram. Ef þú missir af viðburði í beinni útsendingu geturðu keypt aðgang að honum síðar og horft á þegar þér hentar.

Greiðslur
Til að kaupa áskrift eða staka viðburði þarf að ganga frá greiðslu hér á uppkast.is, en eftir það er hægt að horfa hvort sem er hér á síðunni eða í tækjum sem keyra á Android eða Apple stýrikerfum.